miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Fréttir af úlfafjölskyldunni

Það hefur nú ekki farið mikið fyrir bloggi undanfarna mánuði hjá henni mér. Lífið að mestu snúist um óléttu og eitthvað henni tengt. Núna snýst lífið bara um þenna pottorm hérna að neðan. Hann krefst mikillar athygli og fær hana vandræðalaust.

Ég varð svo víst þrítug um daginn, flúði upp í sveit og fékk skúffuköku með bleiku kremi, bakaða af þessari ofurkonu hérna









Ég nennti ekki að taka á móti gestum eftir risastóra nafnaveislu helgina áður. Gæinn verður svo skírður í Staðarhraunskirkju með hækkandi sól. Við þorðum ekki að fara með hann vestur því það var svo vont veður. Hann fékk því bara nafn á meðan amma hans og afi frá Köben voru á landinu. Þau máttu ekki missa af því. Já og nafnið var Úlfur Páll, fyrir þá sem voru ekki búnir að fatta það:)






2 Comments:

Blogger Adda Rut said...

Þessi litli Úlfur, er með örfáum fallegustu drengjum sem ég hef séð. Er hægt að panta hann í hjónaband við dóttur mína eftir svona 25 ár?

11:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæhó
Til hamingju með viðbótina!!!!!!
Bestu kvejður úr ,,sveitinni''
Auður og Hlynur

12:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger