mánudagur, nóvember 21, 2005

The Feminist: sagan af ofurfeministanum!

Ég var að sjá gömul komment frá pistli sem ég skrifaði á kvennafrídaginn en hafði ekki séð, sorry lads. Skammast mín eiginlega fyrir dónaskapinn. En ég verð nú að svara þessum kommentum, sérstaklega frá Óla Val mági mínum og svo náttúrulega bara svona almennt þarf ég aðeins að tala um feminisma - já belive it or not!!! Ég er nefninlega farin að hafa það óþægilega á tilfinningunni að fólk haldi að ég sé holdgervingur feminismans!

Að ég sé OFUR FEMINISTINN!!!

Ég er náttúrulega svaka mikill feministi en ekki endilega hinn eini sanni. Ég hef sagt það hérna áður og segi það enn, ég er ekki einu sinni skráð í Feministafélag Íslands. Bara í mínu eigin feministafélagi - Stórubrjóstajeppaklobbafeministafélaginu með meiru - og þar eru ýmsar skoðanir í gangi og stór og falleg brjóst mikils metin!

En ég vil samt svona í alvöru talað segja það að þó að ég og vinkonur mínar og þær stelpur og konur sem við sem þetta lesum þekkjum hafi það bara helvíti fínt þá er það ekki alls staðar þannig. (En að því síðar) Ég er ekki feministi af því að ég vil verða forsætisráðherra, en ég vil ekki að konur þurfi að berjast helmingi meira fyrir því að verða það en karlarnir. Því trúið mér, það er þannig! Það eru ekki bara femínurnar sem segja það - sjálfstæðiskellingarnar eru meira að segja farnar að viðurkenna karlaveldið í pólitíkinni. Þá er nú mikið sagt! Þetta er ekki bara það að konur sækjist síður eftir áhrifastöðum og hærri launum, þær eiga erfiðara með að komast þangað og það hefur oft verið rannaskað og allt það: sem sagt ömurleg staðreynd. (Svona ef þið trúið mér ekki þá notaði ég skýrslur í BS ritgerðinni minni um þetta mál og las mikið um það - endilega kíkið á Bókhlöðuna og lesið ritgerðina, hún er rosalega skemmtileg).

Og að kynjakvótunum, ég veit ekkert hvort feministar séu ötulir talsmenn kynjakvóta, ég hef að minnst kosti ekkert verið að agintera fyrir honum sérstaklega, en ykkur að segja þá tíðkast kynjakvótar ekki á Íslandi! Kynjakvótar eru ekki það sama og jafnréttislögin. Jafnréttislögin ganga út á að jafna hlut kynjanna í störfum þar sem hallar á annað þeirra. Ef tveir einstaklingar sem eru jafn hæfir sækja um starf þar sem hallar á annað kynið kveða lögin á um að sá einstaklingur sem er af því kyni fái starfið. En alls ekki ef hann er ekki hæfur. Þetta á bæði við karla og konur.

Kynjakvóti er annað, hann getur til dæmis átt við í skólum, segjum ef að hússtjórnarskóli tæki upp á því að taka bara inn 15 stelpur því af 20 nemendum eiga að vera fimm strákar. Þetta er (eða eitthvað í þessa átt) kynjakvóti og tíðkast ekki á Íslandi eins og áður hefur komið fram, að minnst kosti ekki svo ég viti til. Þetta hefur verið notað í Bandaríkjun til dæmis til að fá ákveðið marga blökkumenn inn í háskóla, og þá á kostnað annarra. Margir eru mjög ósáttir við þetta, sérstaklega hvítir miðstéttar stúdentar. Ég held að þetta sé mjög oft gert í einhverri pólitískri rétthugsun án þess að ég hafi neitt sérstakt vit á þessum málum. En getur örugglega skilað góðum árangri í að ná fólki inn í háskóla sem annars kæmist hvergi inn. Þessi hvíti kemst hvort eð er alls staðar inn getur maður ímyndað sér...

Þannig er nú það börnin góð. Eitthvað fleira þarf ég að skrafa um, humm já, jafnréttissinni versus feministi. Ég er jafnréttissinni á allann mögulegan hátt. Ég vil jafnan rétt fyrir svertingja og hvítingja, múslima og kristna, homma og lesbíur og allt þetta. Að vera feministi er að vera jafnréttissinni. Eða alla vega samkvæmt minni skilgreiningu. Það getur svo sem vel verið að til séu feministar sem hati karlmenn og vilji einhver umframréttindi, en orðið feministi þýðir ekki umframréttindi fyrir konur - niður með tippalingana! Feministi þýðir kvenréttindasinni en af hverju KVENréttindasinni? Ekki MANNréttindasinni? Vegna þess að þrátt fyrir að alls staðar í heiminum sé verið að brjóta á öllum, jafnt konum sem körlum, þá er það því miður þannig að konurnar eru í tvöföldum minnihlutahópi. Að vera kona gerir þig nefninlega oft minnimáttar einmitt vegna kynbundins - og kynferðislegs ofbeldis og þeirra dásamlegu staðreynd að við göngum með og ölum börnin! Eins frábært og það er hefur það nefnilega oft mjög neikvæð áhrif á stöðu konunnar - sad but true! Fátæk kona með mörg börn, sem er barin af fátæka manninum sínum og nauðgað, er í verri stöðu en hann, þó hans sé líka ömurleg. Þannig að konan er næstum alltaf í ,,minnihlutahóp" gagnvart karlinum og hefur alltaf verið. Eins og við vitum öll hefur hallað á réttindi kvenna svo árþúsundum skipti og ekkert hægt að neita því. Þess vegna er þessi barátta kölluð feminismi. Það breytir því hins vegar ekki að auðvitað er fullt af alls konar málum sem karlar þurfa að berjast fyrir og ég held satt að segja að feministar séu síst að sporna gegn þeirri baráttu. En eins og ég sagði áðan þá er ég náttúrulega ekki FEMINISTINN þannig að ég veit það ekki baun. Ég hef að minnsta kosti aldrei hitt feminista sem vill niður með karlmenn og einhver umframréttindi fyrir konur. En látið mig vita ef þið finnið hann.

Á Íslandi er þetta líka svona. Sláandi viðtal í Kastljósinu um konur á götunni sem selja sig fyrir húsaskjól! Hverjum eru þær að selja sig - hverjir eru að kaupa þjónustu þeirra? Við vitum öll svarið býst ég við og ég veit líka að fullt af strákum selja sig og já það er slæmt. En við vitum líka að meirihluti þeirra sem þurfa að selja sig eru konur. Þess vegna hefur þessi barátta snúist meira um konur - og til að tryggja mig enn frekar: það þýðir ekki að mér feministanum finnist allt í lagi að karlmenn selji sig. (meiri trygging) Ég er heldur ekki að segja að ALLIR karlmenn séu vondir og kaupi vændi, ég veit alveg að það er ekki þannig.

En ef við tölum ALMENNT þá eru konur mellur, karlar kúnnar, karlar pimpar, karlar nauðga konum og börnum, konur hafa lægri laun en karlar, menntun kvenna er minna metin en karla, karlar hafa minni rétt í forræðisdeilum en konur, kona hefur aldrei verið forsætisráðherra á Íslandi, karlar vinna ekki á leikskólum, konur vinna tvöfalda vinnu (úti og heima) en karlar bara úti! Þess vegna er ég feministi!

Vonandi hef ég náð að útskýra sjónarmið feministans í mér fyrir ykkur sem ekki þekkið hann vel. En mér finnst þú Óli Ofurtöffari alls ekki vera karlremba þó þú sérst ekki sammála mér alltaf. Ég vona líka að þér finnist ég ekki vera alger kvenremba;)
En ég geri mér líka grein fyrir því - eða reyni að gera það - að það hafa ekki allir brennandi áhuga á þessum málum eins og ég en ég tel að minn tilgangur sé að breiða út fagnaðarerindið... (það gengur bara ekki alveg nógu vel hjá mér... he he).

Margir stórir kossar til allra karlmanna sem lesa þetta blogg, þið eruð hetjur og ég get alveg sagt svolítið sem sjokkerar ykkur örugglega - ég elska einn svoleiðis...

(En núna er ég komin í einhverjar afsakanir á skoðunum mínum þannig að ég er bara hætt og segi bless bless og góða nótt allir saman, knúsi knús)

11 Comments:

Blogger Thora said...

Ég sé reyndar ekkert að því að fera femæínistinn.
En góður pistill.
Kv Þóra feministi = jafnréttisinni.

9:27 f.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Nei það er heldur ekki það - bara að fólk haldi ekki að ég sé alltaf að tala fyrir alla feminista. Þeir eru nefninlega jafn misjafnir og þeir eru margir. En ég er náttúrulega Ofur Feministinn, er að pæla í að skrifa myndasögubók:)

11:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er hardcore femínisti, ég er reiður femínisti og finnst ekkert að því. Ég er LÍKA jafnréttissinni en fyrst er ég femínisti, einfaldlega vegna þess að konur hafa úr minna að spila en karlar og allt minna eins og þú bendir á. Eftir því sem ég eldist verður mér líka meira og meira drulluskítsama um hvað fullt af körlum finnst um mig og mínar skoðanir sem femínista. Ég veit að ég hef rétt fyrir mér og skal rífast fram í rauðan dauðann, fólk sem er á móti femínisma er einfaldlega fávíst um sögu, menningu, samfélag og jafnrétti.
Að öðru, þetta með að konur séu söluvara, auðvitað eru ekki allir sem kaupa konur en ég veit að það eru mun fleiri strákar á okkar aldri sem finnst í lagi að kaupa konur en við höldum. Ég held að það þurfi miklu meiri umræðu um afleiðingar af því þegar strákar gera það þó ekki sé nema einu sinni (lesist í fríi í Amsterdam eða Tælandi). Think globally, act locally. Það bera allir ábyrgð, ekki bara vondi pimpinn eða dópsalinn, líka saklaus kaupandinn sem lætur hóruna ginna sig. Æji, ég gæti haldið áfram endalaust.

11:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sko sjáiði, núna líður mér eins og fólk líti á mig sem mannhatara og karlrembu, vegna þess að ég hef sumt að athuga við feminista. það er nefnilega akkúrat þetta sem ég hef að athuga, að draga ályktanir og í dilka

"karlmenn eru oftar en ekki illmenni"

mér finnst ég ekki vera illmenni, og ég umgengst ekki mikið af illmennum, en þau hafa orðið á vegi mínum, og trúið mér nú þegar ég seigi, að ég er ekki viss um að karlkyns illmenni hafi verið þar í meirihluta

9:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

en fínt svar samt sem áður hjá þér gunnhildur

9:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæll Óli.
Ég er reiður femínisti en ég tel karlmenn hvorki verri né betri heldur konur. Ég er reið út í feðraveldið/karlveldið og það er veldi og samfélagsgerð sem hefur verið við lýði frá örófi alda. Þessu kerfi viðhalda bæði konur og karlar og innan þess ríkja viss óskrifuð lögmál sem oft er erfitt að koma auga á. T.d. er enn ríkjandi í flestum að telja að karlmaðurinn eigi að afla meiri tekna en konur, einfaldlega vegna þess að þannig hefur það alltaf verið og þannig var það hjá foreldrum. Vegna þessa þá fá karlmenn oft á sig óréttlátar kröfur um að standa sig og fá síður tækifæri til þess að velja sé verr borguð störf þótt þeir vildu fremur stunda þau. Vegna þessa þá er svolítið ríkjandi í ráðandi aðilum, af báðum kynjum, að finnast þeir þurfa að borga körlum hærri laun. Ekki af því að þeir vinna betur eða af því að þeirra vinna er mikilvægari heldur vegna þess að þeir hafa alltaf verið með hærri laun og manni finnst hálf skrýtið að fara að bjóða karli lægri laun eða jöfn laun og konu í sömu stöðu. Svipuð þessu eru viðhorf til kvenna, karla og uppeldis, konur ?eiga? á einhvern undarlegan hátt frekar að bera ábyrgð á uppeldi barna, sem gerir að verkum að atvinnurekendum finnst ekki að karlar eigi einhvern rétt á t.d. fríi vegna veikra barna. Hefðin fyrir hinu og þessu er ótrúlega sterk og það eru þessi gömlu viðhorf sem femínistar eru að berjast gegn og við þurfum öll a.m.k. að vera meðvituð til þess að hugsa okkur um tvisvar þegar við tökum ákvarðanir.
Ég tala t.d. um kaupendur vændis hér að ofan. Ég þekki stráka sem hafa keypt konur. Þeir eru ekki illmenni, þetta er fínir strákar en hafa ekki hugmynd um afleiðingarnar eða aðstæður þessara kvenna. Það er vegna þess að það er engin uppfræðsla í gangi í skólum og um lítið annað talað en fórnarlömbin. Strangt til tekið eru ekki allar konur fórnarlömb, hins vegar hafa ekki allir sömu möguleika í lífinu. Kona sem hefur verið misnotuð í æsku og ákveður, án þess að vera í dópi, að verða vændiskona hefur t.d. aldrei haft mikla sjálfsvirðingu. Henni hefur verið kennt frá barnæsku að hennar líkami er bara drasl og hennar sjálfsmat byggist í raun á því að vera kynferðislega nothæf. Gallinn yfir höfuð á málum femínista, húmanista, jafnréttissinna ofl. er sá að almenningur hefur yfirleitt lítinn áhuga á að kynna sér þessi mál almennilega.
Tek aftur fram að femínistar telja karlmenn ekki neina sérstaka óvini og síst eitthvað verri heldur en konur. Svo er annað, einn femínisti talar ekki fyrir alla svipað og þú talar ekki fyrir alla karla þegar þú tjáir þig.

11:23 f.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Vá bara allt að gerast hérna.
Óli það álítur engin þig vera eitthvað illmenni, ekki frekar en ég tek það til mín þegar karlar segja að feministar séu ljótar þurrkuntur! Ég er ekki sammála Sigrúnu um að karlar séu meira og minni illmenni. Hef heldur aldrei haldið því fram, en það eru karlar sem í meirihluta fara illa með konur frekar en nokkur annar hópur fólks, held að hún eigi frekar við það - ég á að minnsta kosti við það. Að því að vera hamingjusöm sem feministi er alveg hægt, en kona verður hins vegar að vera dugleg við að banna sér að horfa á alla fréttatíma og lesa öll blöð, þá helst hamingjan þarna einhvers staðar.
Sem sagt Óli ekki taka þessu persónulega, eins og Kraftakerlingin segir þá snýst þetta ekki um persónur heldur um karlaveldið sem ræður ríkjum - og margar konur eru meira en tilbúnar til að viðhalda því - því miður.
En endilega haldið áfram að kommenta hérna inn!

6:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

engin dramatík af minni hálfu

10:14 f.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Svona áfram með dramatíkina drengur! :)

12:58 e.h.  
Blogger B said...

Þessi pistill var nokkuð langur hjá þér en tæmdir þú viskubrunninn með honum?

Það hefur ekkert heyrst í þér svo lengi? Ertu farin í frí?

10:52 f.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Nei bara einhver andleysispása í gangi, þetta er samt alveg að koma. Lofa að fara að gera eitthvað í málunum. En takk fyrir að gleyma mér ekki:)

12:59 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger