miðvikudagur, desember 08, 2004

Kroppurinn í kássu

Það var heilsumæling í vinnunni minni og ég fór áðan. Ég er fín að öllu leyti nema því að ég er miklu feitari en ég lít út fyrir að vera:) Fitumagnið í líkamanum mínum mældist 38,2 en æskilegt er að það sé um 20-25. Hjúkkan mældi mig 5 sinnum og sagði að þetta gæti ekki passað. Hún hélt að ég væri í svo góðu formi að vöðvarnir gætu ruglað þetta eitthvað, sagði að það hefði oft áhrif. Ég hélt ekki... En eitthvað skrítið er þetta sagði hún, gæti líka verið af því ég er svo smáhent og náði ekki yfir allan segulinn sem átti að halda í.

En þessi tala er frekar fyndin, þetta er ein enn talan fyrir okkur að hafa áhyggjur af. Ekki nóg með að vigtin böggi okkur, heldur eitthvað fitumagn! Sumar konurnar hérna höfðu áhyggjur af því að þær voru of háar, ein var með heila 25! Fannst það rosa hátt og sagði að hún væri feitari en hún lítur út fyrir mú ha ha. Ég held að ég hafi nú vinninginn - örugglega feitust miðað við þyngd!

En þetta er sem sagt ekki góður dagur fyrir kroppinn minn - en fer batnandi. Fyrir utan það að uppgötva að ég sé offitusjúklingur;) þá er ég að drepast úr vöðvabólgu í öxlunum og með bilaðan þurrk í augunum. En ég fór í apótekið og keypti dropa og fer svo í dekur á eftir - andlitsbað og vonandi smá nudd niður á herðar. Útskriftargjöf frá Kúbukrúttunum sem ég var að falla á tíma með. vei vei vona að þetta verði ekki eins og ég lenti í í Tyrklandi. Jakk það var viðbjóður. Við Palli fórum í tyrkneskt bað og allt voða næs. Nema nuddið eftir á, þá lenti ég hin heppna í mesta perra sem finnst í landinu. Hann kallaði sig Tiger Ali og potaði í naflann á mér oj og það er viðbjóðslegt. Svo var hann eitthvað að segja að ég væri sæt og spyrja mig hvað ég héti og spurði mig svo hvort hann mætti losa bikínihaldið mitt! Ég fæ hroll ennþá þegar ég hugsa um hann birr.
Ekki gott fyrir fólk sem er með nuddfóbíu eins og ég. Lendi alltaf í svona, eins og á Kúbu, það var nú fyndið, en ekki perralegt.

En bless í bili

2 Comments:

Blogger Thora said...

hahaha fór einmitt að hugsa um Kúbu nuddið. Það var massa fyndið.
Jams, þetta útlit, aldrey er maður nó og góður eða flottur. Magnað alveg hreint. Mér finst þú nú samt flott og fín :)
Þarf reyndar að fara að rifja upp hvernig þú lítur út :)
Kv Þóra

7:04 e.h.  
Blogger B said...

Ég fór í svona mælingu hérna í UQ að ganni og var með 14% þannig ég er akkúrat á hinum enda skalans, anorexíu sjúklingur :)

Nei annars sagði stelpan sem var að mæla að ég væri bara eðlilegur og mætti teljast heppinn miðað við aldur að vera ekki kominn með love handles.

11:42 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger