miðvikudagur, janúar 04, 2006

Gleðilegt ár rassgöt

Hæ ég er mætt aftur í bloggheima!
Búin að skrá mig í Háskólann aftur - vííí ég hlakka til og er komin með fótaóeirð af spenningi, eða einhverju öðru.
Orðin hundleið á því að leita að hinni fullkomnu vinnu, hún er ekki til - að minnsta kosti ekki í bili.
Hélt áramótapartý og matarboð fyrir tengdafjölskyldu mína næstum eins og hún leggur sig. Það lukkaðist einkar vel hjá mér (he hemm okkur afsakið, en hef samt ákveðið að njóta heiðursins ein).
Ég er búin að lesa Harry Potter og er að hugsa um að byrja á fyrstu bókinni aftur og lesa þær allar í röð - af hverju veit ég ekki.
Er að fara upp í sveit í kvöld, eða vestur á Mýrar eða uppeftir eins og var sagt hérna í gamla daga en núorðið virðist maður hættur að nenna að útskýra hvar Mýrarnar og Staðarhraun eru þannig að maður notar bara hið forheimskandi orðatiltæki ,,upp í sveit" eins og hver annar kaupstaðakrakki.
Í ,,sveitinni" ætlar húsmóðirin að verða viðstödd Álfabrennu á þrettándanum og fara í eina svokallaða fjölskylduboðið í minni fjölskyldu á eftir. Þar ætla ég að sjá öll litlu börnin sem ég hef ekki ennþá séð nema fyrir tilstilli nútímatækni sem kallast barnaland.is. Guðsgjöf fyrir fólk sem er lélegt við að treysta fjölskylduböndin.

Í lok þessa pistils ætla ég að gera annál fyrir síðasta ár sem samkvæmt mínum útreikningum var ekki það besta í tæplega 28 ára sögu minni.
Janúar - maí: Vann á Hönnun í óendanlega leiðinlegri ekki vinnu. Þ.e. hafði nákvæmlega ekki neitt að gera. Saknaði Palla og uppgötvaði að ég gæti verið hressari með lífið.
Júní - ágúst: Var upp í Landmannalaugum sem var í sjálfu sér ágætt. Drakk bjór og dúlís, saknaði Palla og reifst við yfirskálavörðinn.
September - desember: Atvinnulaus að leita að frama á vinnumarkaðnum. Saknaði Palla og fann ekki vinnuna góðu. Eldaði mat handa litlu systkinum mínum sem voru svo góð að heimsækja mig næstum á hverjum degi, reyndar í þeim ógöfuga tilgangi að fá að borða hjá mér - en mér var alveg sama, mér finnst svo gaman að sjá þau.
Jólin: Ákvað að fara aftur í skóla þegar ég fattaði að ég gæti verið búin með heila önn af mastersnáminu. Nöldraði í Palla sem ég er búin að sakna allt árið. Svo komu áramót og ég vandist því að hafa karlmann á heimilinu og er svona nokkurn veginn hætt að nöldra í honum enda stóðum við okkur bæði eins og hetjur í eldhúsinu fyrir matarboðið mikla, kannski hann fái líka smá heiður, en batnandi konu er best að lifa og næsta ár verður ekki neitt kjaftæði.
Áramótaheitið mitt er sem sagt að eyða ekki öðru ári í rugl!

Takk samt fyrir það, það var alveg ágætt á köflum - reyndar líka alveg hræðilegt stundum. Þannig að þetta ár, 2006, verður súperdúper ár. Man nefninlega eftir því að þegar við vorum að skála árið 2005 inn á nýársdagskvöld vissi ég að það yrði ekki gott. Við þessi áramót hafði ég aðra tilfinningu, sem sagt góða og ég ætla að treysta á hana!

Með bjartsýni í huga kveð ég að sinni og reyni að verða fyrr á ferðinni næst.
Áramóta kveðja
Gunnhildur í uppsveiflu:)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jey jey jey, loksins loksins. En snilld með skólann, maður á alltaf að vera að læra eithvað.
Jábbs árið 2006 verður massa ár. Látum það verða það :)
En knús og kram
Þóra

3:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sko loksins loksins , fær maður að lesa eithvað nýtt ;)

3:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Batnandi konu er best að lifa! Ég er viss um að 2006 verður mun betra en 2005 hjá þér. En ef þú ert í vafa geturðu farið á Spámaður.is og fengið þér eina góða spá, þar er sko engin hætta á neinu rugli!

10:03 e.h.  
Blogger B said...

Mér finnst fyrirsögnin á þessu bloggi skemmtileg, sérstaklega ef þú snýrð henni yfir á ensku :)

10:22 f.h.  
Blogger Thora said...

Þú verður svo að segja okkur útlanda sögur.
Kv Ritgerður

4:49 e.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Palli er bara búinn að vera að vinna upp á fjöllum, en hann kemur reyndar alltaf heim á tíu daga fresti og ég fæ að hafa hann í fjóra daga. En ég sakna hans sem sagt alltaf í tíu daga í einu. Ekki gaman.

10:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger