föstudagur, febrúar 11, 2005

Verð að blogga aðeins meira - þarf að tala um Kalla og Kamillu og Díönu. Á mbl.is segir að hópur fólks hafi farið að dánarstað Díönu til að votta henni virðingu sína og segir það að Kamilla hafi eyðilagt hjónaband Kalla og Díönu. Ég segi nú bara: Díana var frábær og virðing hennar dvín ekkert þá kallfuskur sem fór illa með hana giftist einhverri kellingu. Díana væri hvort eð er ekkert hamingjusöm ef hún væri með honum í dag, þ.e. ef hún væri á lífi - Kamilla Parker Bowels eður ei...

3 Comments:

Blogger B said...

Nú verð ég að spyrja, hefur þú lesið þér til um ástarlíf þeirra?

Hefur þú kynnt þér það út í þaula? Ef ekki þá skaltu ekki varpa fram klisjum um slæma eiginmanninn sem eyðilagði hjónabandið.

Það er rétt að Kalli kom illa fram við Díönu og hélt augljóslega framhjá henni en Díana var enginn engill og hélt sjálf framhjá Kalla með Cpt James Hewitt.

Eyðilegging hjónabands þeirra var þeim báðum að kenna ekki bara Kalla.

4:59 f.h.  
Blogger B said...

Ég las þetta eitthvað vitlaust hjá þér sé núna að þú varst ekki beint að kenna Kalla karlinum um hvernig fór þannig ég afsaka það :)

2:23 f.h.  
Blogger Gunnhildur said...

Múhaha - eitthvað æstur Bogi minn???

10:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger